Tölvustýrð tæringarvörn – 100% rekstraröryggi.
Minnkar tæringu undir sjólínu um allt að 99%.
Kemur að mestu í stað zink- og álforskauta.

Lengir sjótíma milli slippferða upp í allt að 3 ár. Annar til þriðji hver slippur getur sparast.
Jöfn tæringarvörn, í stað of mikillar fyrst eftir endurnýjun forskauta og síðan of lítillar þegar skautin eru farin að tærast og þörfin fyrir tæringarvörn er mest.
Lengir endingu á skrúfu, þar sem búnaðurinn jarðtengir skrúfuna og ver fyrir tæringu.
Minnkar eldsneytiseyðslu því engin forskaut eru utan á botninum sem valda viðnámi.
Sparar andvirði sitt að á 3-6 árum.

Virkni:
Búnaðurinn samanstendur af tölvustýrðu stjórntæki með innbyggðum straumgjafa, rafskautum, mælingarskautum, sem nema þörfina fyrir tæringarvörn og sleituhring sem jarðtengir skrúfuásinn. Búnaðurinn hindrar tæringu með rafskautunum sem staðsett eru undir sjólínu. Mælingarskautin nema þörfina fyrir tæringarvörn með því að mæla rafhleðslu skipskrokksins. Stjórntækið stýrir síðan straumnum út á skautin í samræmi við mælinguna. Búnaðurinn bregst strax við öllum sveiflum í þörfinni fyrir tæringarvörn. Þess má geta að hámarks afköst 50 amp. kerfis (það er heppileg stærð fyrir meðal togara) samsvara því að á skipi séu stöðugt 100 stk. 3,5 kg. álskaut.

Mjög fullkomið viðvörunarkerfi er innbyggt í stjórntækið sem gefur viðvörun strax ef eitthvað kemur fyrir. Til að tryggja að búnaðurinn vinni alltaf eðlilega les vélstjórinn daglega af mælum stjórntækisins. Aflestrar þessir eru mánaðarlega sendir framleiðandanum sem fylgist stöðugt með. Þetta tryggir að ef bilun verður kemur hún fram strax. Þessi tækni er ekki ný, hún hefur verið notuð í 40 ár og er hafin yfir allan vafa um virkni, enda er þessi búnaður mjög algengur um allan heim. Með nýjustu tækni er þessi búnaður nú orðinn mjög hagkvæmur kostur fyrir minni skip allt niður í u.þ.b. 30 metra löng. Búnaðurinn er viðurkenndur af öllum flokkunarfélögum (t.d. Norsk Veritas & Lloyds).

Verð búnaðarins er mjög hagstætt og borgar sig upp á fáum árum í minna viðhaldi, minni eldsneytiseyðslu og sparnaði sem felst í því að ekki þarf að kaupa og skipta um zink- eða álforskaut.

Close Menu